30.12.2008 | 16:55
Líklegast sjálfvirkt andlát
Frá og með 1. janúar næstkomandi verður einungis hægt að blogga um fréttir á mbl.is ef fullt nafn bloggara birtist á bloggsíðu hans. Bloggarar geta eftir sem áður bloggað undir stutt- eða gælunafni, en fullt nafn viðkomandi þarf að koma fram á höfundarsíðu til þess að möguleikinn að blogga um fréttir sé til staðar.
Þetta var varla gaman. Í þau fáu skipti sem ég kom með málefnaleg (yfirleitt) komment, þá var viðkomandi síðuhöfundur sjaldnast gefinn fyrir annað en mikinn málflutning. Eða öllu heldur: Mikið málfar, lítið innihald. Við höfum nú þegar 63 einstaklinga sem starfa við slíkt á fullum launum.
Sé gerð krafa um fullt nafn, þá hverfur oft möguleikinn á því að koma ýmsu til skila. Í sumum tilfellum vilja menn ekki þurfa að svara til saka fyrir einhverja tiltekna orðsendingu eða einfaldlega hafa ekki áhuga á því. Fyrra tilfellið er hugsanlegt þegar málefnið er viðkvæmt og/eða tengjast viðkomandi, seinna tilfellið er hugsanlegt þegar verið er að koma með nafnlausar ábendingar, t.d. um ranghugmyndir ofstækismanna, s.s. síonista eða þjóðernissinna. Í slíkum umræðum vil ég ekki setja staf niður á blað undir nafni.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.11.2008 | 18:47
Tilgangur [eða tilgangsleysi]
Um bloggið
Höfundur ókunnur
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (30.3.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar